Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
Sameining Íslands og Færeyja
10.3.2009 | 13:43
Er ekki kominn tími til að sameina Ísland og Færeyjar?
Mundi eflaust styrkja fiskimið beggja landa....án þess að ég hafi mikið vit á fiskveiðum.
Svo eru Færeyingar líka bara kúl
Vilja kaupa tryggingafélag hér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hana, nú byrjar þetta aftur....
2.3.2009 | 15:01
Loforð og aftur loforð :)
"Við ætlum að ......"
Við hversu margar kosningar ætli maður hafi nú heyrt þetta.
Og já þetta á við alla flokkana. Er algjörlega búinn að missa trúna á stjórnmálamönnum.
"Í þriðja lagi vill L-listafólk raunverulega endurreisn heimilanna, þannig að tekið verði á okurvöxtum og verðtryggingu sem Þórhallur segir sliga heimilin, í stað þess að tala bara um að gera það"
Jájá gott og blessað en þetta er akkúrat vandamálið. HVERNIG ætlið þið að gera það? Það virðist einhvern vegin alltaf vanta að útskýra það í kosningabaráttum stjórnmálaflokka. Svo þegar þeir eru komin á þing þá komast þeir að því að það er ógerningur að gera það sem þeir standa við...og ekkert gerist.
Getur ekki einhver fjölmiðill tekið saman hverju stjórnmálaflokkarnir lofuðu í síðustu kosningum og við hvað þeir stóðu? Það væri fróðleg lesning og pressa á þá að standa við loforðin.
Fólkið úr öllum áttum á L-listanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)